27.5.2009 | 16:46
Það er hækkun á grunnþjónustu!!
Það er eiginlega ekki hægt að hlusta á þetta án þess að segja eitthvað. Sanngjörn leið væri að hækka eingöngu á þá upphæð sem umframgjald kostar, þ.e. fyrir 9. og 10. stundina. Hins vegar er því farið (skv. fréttablaðinu í morgun) að ef þú ferð yfir 8 tímana, þá borgar þú frá 12% upp í 63% ofan grunngjaldið, líka ofan á 8 tíma gjaldið.
Ég er því algjörlega ósammála því að eingöngu sé verið að hækka á 9. tímann.
|
Blöskrar hækkunin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.9.2008 | 20:40
Kom ekkert við sögu
|
Eiður Smári byrjar á bekknum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2008 | 21:23
Húsdýragarðurinn - viðhald?
Einhvernveginn finnst mér eins og Húsdýragarðurinn verði alltaf ver og ver á sig kominn með hverju árinu. Er hægt að bjóða fólki upp á að þessi garður grotni niður? - engu að síður þarf maður að borga miðann inn dýru verði.
Ég fór á Stöðvar 2 daginn um helgina og smellti þessari af.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.10.2007 | 21:54
Vel undirbúnir en....
|
Eyjólfur: Ég er ekki kominn í þrot með þetta lið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2007 | 09:45
Stóru mistökin!
|
Atli Viðar og Heimir verða ekki með Fjölni í úrslitaleiknum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2007 | 22:36
Vont gert verra með þjálfaraskiptum
Ég hef verið á því frá því að KR skipti um þjálfara í brúnni að það hafi verið stór mistök. Alveg sama hver hefði verið fyrir valinu. Teitur átti að fá að klára þetta. KR stjórnin virðist vera eins og taugaveiklaður köttur í þessu máli. Það er jú skiljanlegt að þeir hafi orðið stressaðir yfir árangrinum en þessi ákvörðun að mínu mati mjög óyfirveguð. Það er ekki til KR-ingur í mér og ég þekki bara til málsins í gegnum fjölmiðlan en það fer verulega í taugarnar á mér þegar menn fara fram með meira kappi en forsjá. Teitur var víst að vinna gott starf varðandi knattspyrnuakademíu fyrir KR og það virtist sem það hefði tekið mikinn tíma. Af hverju ekki að sinna því minna til að klára deildina eða eitthvað í þá áttina?
Hvað Loga þætti Ólafssonar snertir þá hef ég ekki annað að segja en gangi honum vel að ná liðinu upp úr lægðinni. Sjálfstraustið var lítið en var gert enn minna með þálfaraskiptunum.
En hvað veit ég? Þetta er minnsta kosti mín skoðun.
|
FH, Fylkir og ÍA höfðu sigur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.8.2007 | 14:18
Ótrúleg fréttamennska
Ef rétt reynist að aldrei hafi átt sér neinar viðræður þá er þessi fréttamennska eilítið skrýtin. Í fréttum á Stöð 2 segir Lára Ómarsdóttir: "Samkvæmt mjög áreiðanlegum heimildum......".
Þær heimildir hafa ekki verið ýkja áreiðanlegar, nema þá Ashley og félagar séu ekki að segja satt...
|
Ashley segist ekki hafa átt í viðræðum um sölu á Newcastle |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2007 | 14:28
Ekki það eina...
|
Styles fær ekki að dæma um næstu helgi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.8.2007 | 23:45
Ömurlegir Stuðmenn
Ég var á Laugardalsvellinum á frábærum tónleikum, þvílík stemning. Ég óska skipuleggjendum til hamningju og að sjálfsögðu Kaupþingi fyrir vel heppnað gig að langflestu leiti.
Stuðmenn misnotuðu hinsvegar aðstöðu sína allhrikalega og fóru á algjört egotripp með ömurlegum útsetningum og performance sem á heima á elliheimilinu Grund. Lagavalið fór hátt yfir markið og var enganveginn sniðið að þeim breiða hópa sem samankominn var á Vellinum enda þegar fólk heyrði hvað verða vildi í misheppnuðu "Intrói" hljómsveitarinnar þá streymdi fólk heim. Frekar hefðu þeir átt að taka svipaðan pakka og í Húsdýragarðinum á degi verslunarmanna með Valgeir og Birgittu Haukdal og skapa stemningu í stað þess að drepa hana niður.
Bubbi stóð upp úr og hefði ég kosið að hafa hann síðastan eða fá Sálina í stað Stuðmanna til að halda stemningunni upp til enda þar sem Stuðmenn drápu allt niður. Todmobile stóð vel fyrir sínu en Mugison og hljómsveit stóð uppúr að mínu mat fyrir utan Bubba sem mætti einn með gítarinn og fékk fólk til að standa uppúr sætunum.
Dagskráin var sniðin að útsendingu RÚV sem mér fannst að mörgu leiti skemma stemninguna þegar kom að auglýsingahléum og sérstaklega eftir Bubba þar sem hann hefði fengið uppklapp þar sem allir stóðu upp, þ.e þeir sem sátu á annað borð.
Í stuttu máli; Frábærir tónleikar en Stuðmenn ömurlegir, vægast sagt.
|
Aldrei fleiri á Laugardalsvelli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.8.2007 | 00:33
Sumarfrí á enda - Glitnismaraþon
Nú er sumarfríið að taka enda. Eftir fimm vikna frí er ágætt að fara aftur í rútínuna hjá Glitni, vakna 7, mæta kl. 8 og fara heim kl. 5, fara í ræktina (eða ekki), borða, svæfa, horfa, tölvast, sofna etc. Óreglan er orðin algjör og ekki laust við að eitthvað hafi bæst á mallakútinn en það stendur allt til bóta.
Ég vil minna á Glitnismaraþonið. Þó ég sé aðeins hlutdrægur þá er ekki spurning að þetta er frábært framtak hjá Glitni. Ég ætla að hlaupa 3 kílómetra (.. eða skokka.. eða bara labba). Þeir sem vilja heita á mig geta farið á ÞESSA SLÓÐ og smellt inn nokkrum krónum.
Drífið ykkur í Laugardalshöllina á morgun og skráið ykkur ef þið eruð ekki nú þegar búin að því. Það þarf ekki að hlaupa, nóg að labba 3 KM. Just do it.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)








